ladyinblack.bloggar.is
LægðirStínan
í prófum ná allir hlutir ákveðnum lægðum. Bæði andlega og líkamlega. Er orðin töluvert leiðinlegri en í mars/apríl og hika ekki við að deila með fólki "því fyndna við afstæðiskenninguna" og fleira rusli. Enginn er tjúllies í júllies lengur og ef ég verð heppin ná þær niðrí gólf í lok mánaðar. Tyrfingur skítapjölla lagði línurnar fyrir blogg dagsins, þar sem þessi going on thirty shit of a man á afmæli í dag.Minning um mannStínan
Tyrfingur Tyrfings, þú ert ekkert fyrir mér. ég hef ekki hugsað mér að stíga niður á þitt subbulega plan og tíunda þetta mánudagskvöld. Þú getur sitið einn að því. Framkoma þín í minn garð hefur sært mig. Þú hefur margsinnið farið yfir strikið, það er alveg ljóst, en þetta er komið gott. ég þarf ekki að leita lengra en aftur til ársins '03 þegar þú dast í það viku fyrir Mallorca ferðina okkar og manst ekki enn aftir því að hafa farið. Þú smánaðir mig næstu mánuði með því að tjá fólki tilhlökkun okkar fyrir Mallorca ferðinni sem þú "tryðir ekki hvað væri stutt í :)". ég nenni þessu ekki. Fokking ekki.YfirgangurStínan
í fermingunni hennar Svövu systur verð ég í því að ferma og afferma, græja og gera og sjá til þess að allt sé klárt, alltaf. Er að hugsa um að taka þátt í take-overinu sem Tyrfingur er að vinna með og baka life-size magrensköku, rétt stærri en fermingarbarnið sjálft. Aðgerðin hefst á morgun. Sjálfboðaliðar og áhugafólk hafi samband.Beauty, brains, bounty.Stínan
Hola grande.
Í tilefni mánudags og mæðunni sem oftast fylgir, ætla ég að tileinka Jóni Viðari leikhúsfræðingi færslu dagsins. Ég hef komist að þeirri niðurstöðu að hann er hugsanlega táknmynd þess sem ég met mest í almennu gjammi og frammíköllum; takmarkalaus óánægja, djarfar yfirlýsingar, ofhlæði, lingo-rúnk, langsóttar tengingar og besserwiss. Mjög gott. Allt að inspírerandi. Mun nú delera liðna daga og dægurmál að hætti þessa 90´s wonder of a man:
I.
Ég hata Þjóðleikhúsið í óákveðinn tíma. Eftir að hafa misboðið augum og eyrum á misheppnuðustu flippskinku-sýningu ársins, Baðstofu Hugleiks Dagssonar, gerðu ég og (“vinur”) Tyrfingur heiðarlega tilraun til þess að gefa þessu batteríi annað tækifæri og sjá aðra sýningu. Ljóst er að margt hefur farið miður í rekstri Þjóðleikhússins síðustu ár, nema kannski að splæsa reglulega í almennilegt hrukku-lube fyrir leikhússtjóra sem hefur verið gert samviskusamlega. Hins vegar hefur gleymst að setja sveskjurnar í miðasölunni á eftirlaun, þar sem þær eru almennt fullsaddar af sinni stöðu, vilja helst ekki svara í símann og að sjálfsögðu ekkert fyrir þig gera.
II.
Eftir að hafa fylgst með löngu og flóknu leiðindamissioni Elínar góðvinkonu minnar, er það klárt mál, að ekki ein búvöru-húsgagna eða raftækjaverslun selur geisladiskastanda lengur. Speisaða einingin sem allir fengu helst 5 stykki af í fermingargjöf. HVAÐ ER MÁLIÐ? Hef tekið að mér að smíða einn slíkan with my bear hands, úr því sem hendi liggur næst.
III.
Ferming á sunnudaginn hjá Svövu Tyrfings í Fífuhöllinni. Verð að sommelier og hef yfirumsjón með rækjusulli og brauðréttum; hvað fer fram, hvað er að gera góða hluti, hverju er skóflað í blómapottana og hver binge-ar mest. Örugglega mjög gott. Er með töluvert langa ræðu og samtvinnaðan paraleik í undirbúningi.
Við þá sem núna eru að hugsa, “ vá, en hugmyndaríkt, liða niður blogg til glöggvunar, áfram svona bloggari” segi ég hey takk J. Hinir geta geta go to fokk.
ársuppgjör.Stínan
Heilög páskahátíð hefur lagst misvel í mig. Stjórnkerfi Bloggar.is á þar stóran þátt í óánægju minni, þar sem ekki virðist vera hægt að pósta drasli ef þú ert lengur en 7 min að skrifa færsluna. Einnig virðist ekki vera í boði að vera inni á annarri síðu meðan á skrifum stendur. Bloggarar Bloggar.is skulu vanda til verks og vera klárir með færsluna í word, helst líka með handskrifað uppkast milli handanna, og pósta henni vandlega yfirfarinni og tilbúinni til að gangast undir þungan dóm bloggheimsins. Díses.
Ég hef þó beðið með skrif í rúma viku og er það ekki að sökum leti, túr, skalla eða annars óskunda heldur þyngsla í hjarta. Ég hata túr samt.
Föstudagurinn langi var sá einn sá allra lengsti sem ég hef á ævi minni upplifað. Ég bauð vinum í lúxus matarboð í tilefni þess meinlætalífs og nægjusemi sem fylgir deginum. Ég átti erfitt með hreinlega að fá sjálfa mig til þess að bjóða ákveðnum aðila, af fenginni reynslu, en ákvað loks að bíta á jaxlinn og bjóða honum, góðverk sem ég sé núna að voru mistök.
Og ekki var það nú bara boðið sjálft sem skaut langt undir markið, heldur hefur “bloggarinn” TyFFi Djúníor, ( sem hann lætur kalla í sig í þessum skítadalli sem hann kallar Hús Humarsguma og lætur sem hann vinni fyrir sér), gróflega misboðið mér með sinni færslu um umrætt kvöld. Þessi 101-bóhem-skítapjása sem valsar um öll kvöld, frá pöbbi til pöbbs, takandi á löpp pabba eftir pabba og sér tveimur of marga tvöfalda Bacardi í diet coke ( mikinn klaka og rör), vogar sér að skemma boðið með gaspri, niðurlægja matseld heimilisins, stórslasa húsdýrin og kórónar allt með dónaskap og lygasýki.
Dagurinn hófst á stanslausum upphringingum frá honum þar sem hann bað ítrekað um leyfi til að taka með hundsrassgatið Lúkas sem hann og sambýliskona fengu á kúk og kanil á yardsale bakvið Hótel Holt. Ég hélt nú ekki, enda myndi Lúkas líklega kúka kanil yfir allt og sperra heimiliskisuna.
Langar mig nú að leiðrétta þau atriði sem T. Boner fór frjálslega með:
- Hann drakk alls ekki gin í Spur eins og við hin, heldur fékk hann djörfu útgáfuna af Gammel í trönuberjasafa.
- “Love and Marriage” atriðið náði aldrei að byrja, þrátt fyrir að allt væri klárt, þar sem Tybbi hélt langa tölu um “lífsins lystisemdir” og þátttöku hans í prufum fyrir Goða-auglýsingarnar frá 95, þar sem hann náði því miður ekki að land the job.
- Borðhaldið náði ákveðnum botni þegar hann tók að skafa alla Béarnaise sósuna, sem ég hafði eytt miku púðri og smjöri í, af kjötstykkinu sínu og klína henni jafnóðum í dúkinn.
- Það er varla mín sök að þér hafi fundist fyndið og viljað vekja athygli á þér með því að toga í bolinn minn svo að júllies fóru útum all tog helltu niður rauðvíninu. Bolurinn er núna ónýtur og mætti segja ég sé það líka.
